Skilmálar Ger vefverslunar

Meginupplýsingar

Þessi skilmáli gildir um sölu á vöru og þjónustu Ger heildverslunar til fyrirtækja.  Skilmálinn, sem staðfestur er með staðfestingu á kaupum, er grunnurinn að viðskiptunum. Skilmálinn og aðrar upplýsingar á www.ger.is eru einungis fáanlegar á íslensku.

  1. Skilgreining

Seljandi er Ger heildverslun, sem er í eigu GER verslana ehf. kennitala: 461212-1230. VSK nr.: 112781. Ger verslanir er skráð í Firmaskrá Íslands. Kaupandi er sá aðili sem er skráður kaupandi á reikning.

  1. 14 daga skilaréttur á kaupum í Ger vefverslun

Réttur viðskiptavinar til að falla frá samningi á kaupum í vefverslun:

Kaupandi hefur rétt til þess að falla frá þessum samningi að því tilskildu að varan hafi ekki verið notuð og sé skilað í óuppteknum, upprunalegum umbúðum.  Frestur til að falla frá samningnum rennur út 14 dögum eftir daginn þegar kaupandi eða þriðji aðili annar en flutningsaðilinn, sem kaupandi hefur tilgreint, hefur í reynd fengið vöruna í sína vörslu.

Til þess að nýta réttinn til að falla frá samningnum þarf kaupandi að tilkynna seljanda ákvörðun kaupanda um að falla frá samningnum með ótvíræðri yfirlýsingu (t.d. með bréfi sendu í pósti, símbréfi eða tölvupósti.  Í yfirlýsingunni þarf að koma fram nafn kaupanda, kennitala, heimilisfang og ef hægt er símanúmer kaupanda, fax og netfang.  Kaupandi getur einnig fyllt út og sent með rafrænum hætti staðlaða uppsagnareyðublaðið eða aðra ótvíræða yfirlýsingu á vefsvæði seljanda á www.ger.is  Ef kaupandi notar þennan valkost mun seljandi senda kaupanda kvittun fyrir móttöku slíkrar uppsagnar á varanlegum miðli (t.d. tölvupósti) án tafar.

Áhrif þess að falla frá samningi:

Ef kaupandi fellur frá þessum samningi mun seljandi endurgreiða allar greiðslur sem seljandi hefur fengið frá kaupanda, þ.m.t. afhendingarkostnað (að undanskildum viðbótarkostnaði vegna þess að kaupandi hefur valið annan sendingarmáta en ódýrasta staðlaða sendingarmátann sem seljandi býður), án ástæðulausrar tafar og alla jafna eigi síðar en 14 dögum eftir þann dag þegar seljanda er tilkynnt um ákvörðun kaupanda um að falla frá þessum samningi.  Seljandi mun endurgreiða kaupanda með því að nota sama greiðslumiðil og kaupandi notaði í upphaflegu viðskiptunum, nema kaupandi hafi samþykkt annað sérstaklega; í öllum tilvikum þarf kaupandi ekki að bera neinn kostnað af þessari endurgreiðslu.

Seljandi getur haldið eftir endurgreiðslu þar til seljandi hefur fengið vöruna aftur eða kaupandi hafi lagt fram sönnun fyrir endursendingu hennar, hvort sem kemur á undan.

Kaupandi þarf að bera beinan kostnað af endursendingu vörunnar.

Kaupandi þarf að endursenda vöruna eða afhenda seljanda án ástæðulausrar tafar og eigi síðar en 14 dögum eftir daginn sem kaupandi tilkynnir ákvörðun sína að falla frá samningnum.  Fresturinn skal teljast virtur ef kaupandi endursendir vöruna fyrir lok 14 daga tímabilsins.

Kaupandi er aðeins ábyrgur fyrir allri rýrnun á verðgildi vörunnar sem stafar af meðferð hennar annarri en þeirri sem nauðsynleg er til að staðfesta eiginleika, einkenni og virkni hennar.

  1. Pöntun

Pöntun eru bindandi þegar hún er skráð á netþjón seljanda.  Seljandi er einnig bundinn til að afgreiða pöntun kaupanda svo lengi sem hún er í samræmi við vöruúrval og verðlagningu. Allar pantanir þar sem grunur um að brögð séu í tafli og/eða þar sem hugbúnaðargalli hefur áhrif eru afturkallaðar

Seljandi sendir kaupanda staðfestingu þegar pöntun er skráð, þó aðeins ef að kaupandi hefur skráð netfang sitt við kaupin. Kaupanda er bent á að kynna sér gaumgæfilega pöntunarstaðfestingu þegar hún berst. Einng ætti að ganga úr skugga um að hún sé í samræmi við fyrirhugaða pöntun.  Frávik frá pöntun og pöntunarstaðfestingu skal túlkað sem nýtt tilboð frá seljanda sem að hægt er að afþakka eða samþykkja. Kaupandi hefur einnig rétt til að láta upprunalega pöntun gilda svo lengi sem hún er í samræmi við það sem seljandi bauð upp á.

  1. Upplýsingar

Seljandi veitir upplýsingar um vörur eftir bestu vitund hverju sinni. Seljandi birtir allar upplýsingar með fyrirvara um bilanir, vírusa, prent-, birtingar- og innsláttarvillur í texta, verðum og myndum.

Ennfremur áskilur seljandi sér rétt til að aflýsa í heild eða að hluta til pöntun kaupanda ef að varan er uppseld. Undir þeim kringumstæðum fær kaupandi tilkynningu ásamt upplýsingum um hvað gæti mögulega hentað í staðinn. Kaupandi fær þá möguleika á að samþykkja þá tillögu eða aflýsa pöntun í heild sinni.

  1. Verð

Verð eru á stöðugum breytingum hjá seljanda vegna samkeppni og verðbreytinga birgja. Verðhækkanir sem verða eftir pöntun viðskiptavinar eru ekki afturkræfar. Það verð gildir sem var í gildi þegar pöntun var gerð og kemur fram á pöntunarstaðfestingu. Heildarkostnaður er tekinn fram áður en kaupandi staðfestir pöntun endanlega. Þar er tekinn fram allur kostnaður við pöntun s.s. þjónustu, sendingu o.s.frv. Aðeins sértilfelli geta haft með sér aukakostnað eftir pöntunarstaðfestingu. Sem dæmi má nefna eru bilanir, vírusar, prent-, birtingar- og innsláttarvillur í texta, verðum og myndum. Netverð gildir aðeins þegar vara er keypt í Vefverslun.

  1. Greiðsla

Hægt er að inna greiðslu af hendi með bankamillifærslu, greiðslukorti eða skuldfærslu á viðskiptareikning. Ef greitt er með greiðslukorti eða skuldfærslu á viðskiptareikning er upphæðin skuldfærð við afgreiðslu pöntunarinnar af lager. Ef greiðsla fyrir vefpöntun berst ekki innan 8 daga, áskilur seljandi sér rétt til að aflýsa pöntuninni. Ef greitt er með bankamillifærslu eru pöntun sett í tiltekt þegar millifærsla hefur verið staðfest. Vandamál með viðskipti tengd viðskiptareikningi falla undir skilmála reiknings.

  1. Afhending og seinkun

Afhending telst vera innan eðlilegra tímamarka frá útgáfudegi reiknings. Tekið er fram í kaupferlinu hverju má búast við miðað við valda sendingarleið. Seljandi afhendir vörur einungis innan Íslands. Ef afhendingu seinkar mun seljandi tilkynna það til kaupanda ásamt upplýsingum um hvenær pöntunin verður tilbúin til afhendingar eða bjóða staðgengilsvörur ef að varan er uppseld.

 

Afhendingarmátar í Vefverslun Ger eru; Senda á næsta pósthús við viðtakanda, heimkeyrsla með póstinum (þar sem það er í boði), Sendibíll fyrir stór tæki innanbæjar og sækja vöru á lager.  Allar pantanir yfir kr. 20.000 krefst undirskriftar korta/reikningseiganda gegn framvísun persónuskilríkja þ.e. passa eða ökuskírteinis.

Pósturinn: Allar pantanir yfir kr. 20.000 krefst undirskriftar korta/reikningseiganda gegn framvísun persónuskilríkja þ.e. passa eða ökuskírteinis. Pantanir undir kr. 20.000 eru afhentar aðila á afhendingarstað .. Allar skemmdir á vörum af hendi flutningsaðila eru á þeirra ábyrgð og að fullu bætt gagnvart viðskiptavin. Skemmdir eftir að vara hefur verið afhent er á ábyrgð kaupanda. Ef að afhending vöru í heimakstri reynist árangurslaus er hægt að óska eftir nýjum afhendingartíma gegn gjaldi sem greitt er beint til póstsins.

Pantanir eru afgreiddar frá vöruhúsi  okkar á Blikastaðavegi 2-8 (Korputorg).

Ef óskað er eftir að geyma vöru í vöruhúsinu er geymslutími miðaður við 2 vikur, ef óskað er eftir að geyma vöru lengur en það er krafist mánaðarlegt geymslugjalds sem um nemur 5% af upphæð vörunnar.

  1. Yfirferð á vörum

Eftir að kaupandi hefur móttekið pöntunina þarf hann að kanna hvort hún sé í samræmi við pöntunarstaðfestinguna, hvort eitthvað hafi skemmst í flutningi og að allar vörur séu samvkæmt vörulýsingu og ógallaðar.

Skilmálar þessir gera ráð fyrir að kaupandi hafi lesið og kynnt sér leiðbeiningar og/eða handbók sem fylgja keyptri vöru við afhendingu. Eðlilegur athugunartími viðskiptavinar telst vera innan 4 daga. Eftir 4 daga áskilur seljandi sér rétt til að sannreyna staðhæfingu kaupanda innan eðlilegra tímamarka áður en leyst er úr umkvörtunarefni kaupanda. Í flestum tilfellum felur það í sér athugun hjá viðurkenndum þjónustuaðila.

  1. Réttur við galla eða vöntun

Ef að varan er gölluð eða það vantar eitthvað í vöruna er seljanda skylt að bjóða kaupanda viðgerð, nýja vöru, afslátt eða afturköllun kaupa. Það fer eftir atvikum hvaða leið er valin hverju sinni.

Tilkynning á galla verður að berast munnlega eða skriflega. Mælt er með að tilkynningin berist innan 30 daga frá því galli uppgötvast. Vegna skráningargildis er mælt með að að kaupandi sendi tölvupóst um gallann og geymi afrit. Seljandi sendir staðfestingu til baka um móttöku tölvupóstsins.

Réttur til að fá galla bættan er í 2 ár. Réttur til að kvarta er 5 ár, þó aðeins á vörum sem eru með viðurkenndan meðallíftíma umfram 2 ár.

Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna að varan sé gölluð, þó innan eðlilegra tímamarka.

  1. Ábyrgð

Ábyrgðir seljanda hafa ekki í för með sér takmarkanir á rétti sem á er kveðið um í lögum um neytendakaup. Ábyrgð vegna galla á vöru er 1 ár eftir kaupdagsetningu til fyrirtækja samkvæmt neytendalögum og lögum um lausafjárkaup. Ef söluhlut er ætlaður verulega lengri líftími en almennt gerist þá er frestur til að kvarta 5 ár.

Ábyrgð er ekki staðfest nema að kaupnótu sé framvísað. Ábyrgðin nær ekki til eðlilegs slits tækis eða notkunar á rekstrarvörum þ.e.a.s. hún nær ekki til tækja sem eðlilegt þykir að endist skemur en 2 ár. Ábyrgð fellur úr gildi ef varan hefur verið opnuð eða átt hefur verið við hana án yfirumsjónar/samþykkis seljanda þrátt fyrir að þar hafi verið að verki verkstæði og/eða viðurkenndur aðili. Ábyrgðin fellur einnig niður ef rekja má bilun til illrar eða rangrar meðferðar og er kaupanda bent á að lesa gaumgæfilega leiðbeiningar eða handbók skv. 8. grein þessa skilmála.Í sumum tilfellum eru einstakar vörur eða vörumerki með lengri ábyrgðartíma. Í þeim tilfellum sem það á við er slíkt tekið fram. Seljandi er ekki skuldbundinn til að taka þátt í viðgerðarkostnaði, gefa afslætti, skipta út vöru o.s.frv. eftir 2 ára ábyrgðartíma.. Seljandi þarf þó að taka tillit til 5 ára kvörtunarfrests ef meðallíftími tækis er ætlaður verulega lengri en almennt gerist. Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna að galli eða bilun heyri undir ábyrgðarskilmála, þó innan eðlilegra tímamarka. Ef að til úrlausnar ábyrgðar kemur, er seljanda skylt að bjóða kaupanda viðgerð, nýja vöru, afslátt eða afturköllun kaupa. Það fer eftir atvikum hvaða leið er valin hverju sinni.

  1. Persónuvernd

Farið er með allar persónuupplýsingar sem seljandi móttekur sem algjört trúnaðarmál og þær aðeins nýttar í þeim tilgangi að klára viðskiptafærslu. Kaupanda gefst hins vegar kostur á að fá send tilboð í tölvupósti og mun seljandi þá aðeins nota þær upplýsingar sem til þess þarf s.s. póstfang.

  1. Eignarréttur

Seldar vörur eru eign seljanda þar til kaupverð er að fullu greitt. Reikningsviðskipti eða önnur lánaform afnema ekki eignarétt seljanda fyrr en full greiðsla hefur borist.

  1. Úrlausn vafamála

Ávallt skal reyna að leysa öll mál á sem einfaldastan hátt. Ef það er ekki mögulegt er hægt að bera málið undir Kærunefnd þjónustu og lausafjárskaupa sem hýst er af Neytendastofu. Sem síðasta úrræði er hægt að fara með málið fyrir dómstóla. Það skal gera í íslenskri lögsögu og í lögsagnarumdæmi seljanda .

  1. Þjónusta og upplýsingar

Kaupanda er bent á að senda tölvupóst með öllum þeim upplýsingum er varða kaupin  hjá ger.is til að fá úrlausn á því sem hann vantar. Kaupandi getur einnig hringt í aðalsíma Ger þar sem honum verður vísað á réttan stað.